Bloggerí

Það er hér

01.07.2007 19:09:26 / magga

Á klakanum

Jæja þá er maður búin að vera á klakanum í rúman mánuð, farin að vinna og bara nóg að gera:) Ekki það að það sé spennandi að vinna 12 klst vaktir en þetta er samt alveg fínt;) Ekki mikið svo sem að frétta, veðrið búið að vera frábært og ég búin að vera meir og minna barnlaus o það verður að segjast að þótt það geti verið ansi Nice þá getur það verið einmanalegt hafa ekki guttana hjá sér:$ Svo komum við aftur til DK þann 23. júlí til að taka á móti gestum:D Bara gaman, já Lína, Ásta D. og Ásta B ætla að mæta á svæðið og vera í 2 vikur og svo kemur sá allra sætasti til mín og verður hjá mér e-ð í ágúst:D hlakka bara til.. Að þessu sinni ætla ég að fljúga frá Gautaborg, hef ekki prófað það, en vona bara að það gangi vel:S Svo er bara að byrja að pakka þegar gestaganginum er lokið og það er BARA leiðinlegt skal ég segja ykkur...HATA að flytja!!! en þetta er víst e-ð sem verður að gera. Nú er maður komin á fullt að leita að vinnu og íbúð, ójá ekki veitir af þar sem ég veit nú ekki einu sinni hvert ég á að senda aumingja strákana í skóla8| en hva auðvitað reddast þetta allt saman á endanum.. er þaggi;) Annars hafa fleiri verið að flytja um helgina, því Ragga og Fergal skiluðu íbúðinni í dag og eru að flytja til Hollands og svo er hún Ásta D. líka að klára að flytja.. ÞIÐ eigið alla mína samúð:lol: þetta er alls ekki það skemmtilegasta. En þið sem vitið af íbúð á lausu á Íslandi, endilega að láta mig vita:) og svo er ég nú líka að selja bílinn minn ef einhverjum þarna úti í DK vantar eðalkagga, þá á ég hann;)

Jæja hef ekki mikið meir að segja..

Hilsen

M


» 1 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Dagsetning
21. mars 2010
Here i come
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1029 dögum